|
Velkomin á vefsvæði Frumtaks |
|
Frumtak GP ehf er rekstraraðili samlagssjóðsins Frumtaks slhf sem er í eigu NSA, þriggja banka og sex lífeyrissjóða.
Frumtak slhf. er sjóður sem fjárfestir í sprota og nýsköpunarfyrirtækjum sem komin eru af klakstigi og eru vænleg til vaxtar og útrásar. Sjóðurinn hefur það markmið að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði þannig að þau skili ekki aðeins góðri ávöxtun til fjárfesta heldur leggi einnig sitt af mörkum til þess að bæta það samfélag sem þau búa í.
Frumtak slhf. fjárfestir á Íslandi en er heimilt að fjárfesta erlendis að því marki sem nauðsynlegt er vegna útrásar eða markaðssóknar fyrirtækja í eigu Frumtaks á erlenda markaði. Sjóðurinn leggur áherslu á fjárfestingar þar sem líkur eru á miklum vexti og útrás, en sérhæfir sig ekki í einstökum greinum. |
|