|
Eggert hefur áralanga reynslu af stofnun og rekstri sprota og frumkvöðlafyrirtækja, sérstaklega á sviði upplýsingatækni. Eggert var m.a. einn af stofnendum Tölvumiðlunar ehf og framkvæmdastjóri þess 1990 – 2006, fjármálastjóri eMR 2000 – 2002, stjórnarmaður í EJS UK 2004 – 2008 og stjórnarformaður GoPro ehf frá 2003. Eggert var einn af eigendum og fjármálastjóri Tölvuþekkingar ehf frá 1992 til ársins 2000 þegar það var selt Eastman Kodak í Bandaríkjunum. Hann hefur unnið mikið að málefnum iðnaðarins og gegnt fjölda trúnaðarstarfa, nú síðast sem formaður Samtaka Upplýsingatæknifyrirtækja. Hann hefur einnig unnið að hagnýtingu þekkingarverðmæta og tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum á því sviði. Eggert hefur verið stundakennari hjá Háskóla Íslands og nú Háskólanum í Reykjavík. Eggert lauk doktorsprófi í viðskiptafræði á þessu ári frá Brunel University-Henley Management College í Bretlandi.
|