| Frumtak fjárfestir í PM Endurvinnslu |
|
|
|
|
Frumtak hefur fest kaup á hlut í PM Endurvinnsla ehf. Félagið einbeitir sér að móttöku plastúrgangs til endurvinnslu, en framleiðslan er síðan seld innanlands og erlendis. Félagið hefur byggt verksmiðju í Gufunesi í Reykjavík og hjá félaginu hefur byggst upp umtalsverð reynsla af framleiðslu á endurunnu plasti undanfarin 6 ár. Félagið hefur m.a. þróað aðferð til að hreinsa og endurvinna ofin plastefni og náð góðum árangri við hreinsun þessara efna, en aðgengi að heitu og köldu vatni á Íslandi veitir fyrirtækinu forskot við vinnsluna. Allar framleiðsluafurðir félagsins eru í endanlegu formi sem plastkúlur. Plastkúlurnar eru síðan notaðar af kaupendum til bræðslu í alls kyns aðra plastvinnslu.
„PM Endurvinnsla er afar spennandi fyrirtæki“ sagði dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „Félagið er raunveruleg endurvinnsla því það breytir plastúrgangi í fullunnið hráefni til iðnaðarframleiðslu og notar til þess græna orku. Fyrirtækið er því mikilvægt í verndun umhverfis og minnkar þann plastúrgang sem þarf að urða eða senda úr landi. Síðast en ekki síst þá er framleiðslan fjárhagslega hagkvæm því gríðarlegur virðisauki verður við hana. Það fæst svo mikið meira fyrir fullunnið hráefni heldur en plastúrganginn sem notaður er til framleiðslunnar. Það er ánæguefni að þeir fjármunir sem Frumtak fjárfestir í félaginu gera því kleift að ljúka við gerð verksmiðjunnar og fullnýta núverandi afkastagetu hennar“. „PM Endurvinnsla er fyrirtæki sem byggir á íslensku hugviti og vistvænni orku“ sagði Haraldur Aikman, framkvæmdastjóri PM Endurvinnslu. „Það er samhentur hópur sem hefur staðið uppbyggingu félagsins og þróað þá tækni sem notuð er við framleiðsluna. Framleiðslutækni félagsins byggir á löngu þróunarstarfi sem hefur skilað góðum árangri við endurvinnslu á plasti. Samstarf PM Endurvinnslu og Frumtaks gerir fyrirtækinu kleift að ljúka við uppsetningu á viðbótarbúnaði til þess að auka afköst verksmiðjunnar og nýta enn frekar plastúrgang til þess að framleiða gæða hráefni til iðnaðarframleiðslu“. Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og þriggja banka. Frumtak fjárfestir í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir. Nánari uppýsingar veita: PM Endurvinnsla Frumtak Haraldur Aikman,framkvæmdastjóri Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Sími 8966577 Sími 8970892 |