| Frumtak fjárfestir í Median |
|
|
|
|
Frumtak hefur keypt u.þ.b. 70% hlutafjár í Median – Rafræn miðlun hf. Seljandur hlutarins eru Drómi hf. og Miðengi ehf. en Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur annast ráðgjöf og söluferli á Median – Rafrænni miðlun síðan í maí á þessu ári. Um opið söluferli var að ræða þar sem öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylltu ákveðin skilyrði var boðið að taka þátt. Markmið Frumtaks með kaupunum er að samnýta tækni og markaðsstarf fyrirtækjanna Median og HandPoint, en bæði fyrirtækin starfa á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar.
Median - Rafræn miðlun hf. er hugbúnaðar- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að skapa fyrirtækjum lausnir á sviði færslumiðlunar og rafrænna viðskipta. Lausnir þeirra eru notaðar af hundruðum fyrirtækja, bæði innanlands og erlendis, beint og í gegnum samstarfsaðila. Félagið er stofnað 1993 og byggir því á traustum grunni. Þjónustuframboð félagsins lýtur bæði að tækni sem og þjónustulausnum sem hafa verið þróaðar til að leysa þarfir viðskiptavina þess þegar kemur að rafrænni greiðslumiðlun.
„Median er ákjósanlegur fjárfestingakostur fyrir Frumtak“ sagði dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „Frumtak hefur þegar fjárfest í HandPoint ehf, sem hefur þróað greiðslulausnir fyrir handtölvur og þess vegna sjáum við mikil tækifæri til þess að tengja þessar lausnir við þjónustuframboð Median og markaðssetja þessar lausnir erlendis. Við væntum mikils af fyrirtækjunum og erum sérstaklega spennt að sjá þau nýta sérþekkingu sína í sölu á greiðslulausnum á erlendum mörkuðum. Þarna eru mikil tækifæri sem nú er hægt að nýta betur“.
|