|
Frumtak fjárfestir í Andersen & Lauth |
|
|
|
Neðri röð frá vinstri: Gunnar Hilmarsson, Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, Eggert Claessen, Eiríkur Sigurðsson, Atli Vilberg Vilhelmsson.
Efri röð frá vinstri: Svana Gunnarsdóttir, Hólmgeir Hólmgeirsson, Eydís Björg Sæmundardóttir, Helga Gísladóttir, Grétar Haraldsson.
Frumtak hefur lokið fjórðu fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í Andersen & Lauth ehf. Andersen & Lauth er íslenskt fyrirtæki sem hannar,framleiðir og selur hátískufatnað á alþjóðamarkaði. Félagið er með umboðsmenn og söluskrifstofur í tólf löndum og selur hönnun sína í rúmlega 450 búðir í um tuttugu löndum. Félagið var stofnað árið 2006, hóf rekstur 2007 og hefur vöxturinn verið hraður.
„Það er okkur sérstök ánægja að geta fjárfest í íslenskri hönnun“ sagði dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „Andersen & Lauth byggir á gömlu vörumerki sem á sérstakan stað í hugum margra Íslendinga. Félagið hefur á að skipa úrvals hönnuðum og hefur náð að byggja upp traust viðskiptasambönd bæði í sölu og framleiðslu á erlendum mörkuðum. Þarna eru mikil tækifæri sem nú er hægt að nýta“.
„Vöxtur Andersen & Lauth hefur verið hraður og mikil svörun verið við vörumerkinu bæði erlendis og á heimamarkaði. Aðkoma Frumtaks gefur okkur bakland til að fullnýta það tækifæri. Fá skandinavísk fyrirtæki í fatahönnun hafa vaxið jafn hratt og Andersen & Lauth. Það er okkar mat að Frumtak sé með aðkomu sinni einnig að setja sinn gæðastimpil á íslenska hönnun og að mikið tækifæri leynist í hugviti hönnuða á Íslandi“ segja Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir stofnendur og hönnuðir Andersen & Lauth.
„Aðkoma Frumtaks er mikil viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið hjá Andersen & Lauth ehf. undanfarin ár. Fjárfestingin mun efla fyrirtækið til muna og gefa okkur kost á hraðari vexti og efla okkur í þeirri vinnu sem er framundan“ sagði Atli Vilberg Vilhelmsson framkvæmdastjóri Andersen og Lauth.
Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og bankanna þrigga. Frumtak fjárfestir í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir.
Nánari uppýsingar veita:
|
Andersen & Lauth
Atli Vilberg Vilhelmsson, framkvæmdastjóri
Sími 8612600
www.andersenlauth.com
|
Frumtak
Eggert Claessen, framkvæmdastjóri
Sími 5101850
www.frumtak.is
|
|