Frumtak

Fjárfestingaferli PDF Print Senda

Uppgötvun og greining fjárfestingatækifæra

Það er hlutverk framkvæmdastjóra Frumtaks að vinna að uppgötvun og greiningu fjárfestingatækifæra fyrir hönd stjórnar.  Í þessu felst að eiga samstarf við helstu hagsmunaaðila sprota og nýsköpunarfyrirtækja eins og sprotasetrin, Impra og Klak, Samtök Sprotafyrirtækja, Nýsköpunarsjóð og fyrirtækjasvið bankanna.  Frumtak bíður ekki eftir umsóknum um fjárfestingu heldur leitar kerfisbundið að hagkvæmum fjárfestingakostum í samstarfi við hagsmunaaðila.  Sjóðurinn vill og á að hafa frumkvæði að uppgötvun og nýtingu fjárfestingatækifæra þegar slík tækifæri gefast.

Þau fjárfestingatækifæri sem þannig finnast eru metin af framkvæmdastjóra út frá þremur megin forsendum.

Fyrst er það hvort fjárfestingakosturinn falli að fjárfestingastefnu sjóðsins, sem er eftirfarandi:
•    Upphæðir fjárfestinga séu á bilinu 50-500 milljónir ISK.
•    Miðað sé við þriggja til 5 ára eignarhald
•    Ávöxtunarkrafa til einstakra fjárfestinga sé 30% að lágmarki
•    Fjárfestingum fylgi stjórnarsæti og hluthafasamkomulag
•    Frumtak geti verið virkur hluthafi og unnið með þeim hætti að framgangi fjárfestinga sinna

Því næst eru fjárfestingakostir mældir út frá þeim þekkingarverðmætum sem þar er að finna og felast í mannauði, skipulagsauði og tengslaauði.  Þannig er reynt að leggja hlutlægt mat á hið raunverulega tækifæri sem felst í viðkomandi fjárfestingakosti og hvort sú virkni sem er að finna í viðkomandi tækifæri er líkleg til þess að skila árangri. 
Að lokum er það síðan huglægt mat eða trú á viðkomandi fjárfestingakosti sem endanlega ræður hvort hægt er að mæla með viðkomandi tækifæri til fjárfestingar fyrir sjóðinn.
Niðurstaðan úr þessari vinnu leiðir síðan í ljós hvort mælt er með viðkomandi fjárfestingakosti við stjórn til frekari úrvinnslu eða að honum er hafnað af framkvæmdastjóra.  Lögð er áhersla á að þeim sem neitað er um fjárfestingu séu gefnar skýringar og að þeir skynji viðmót Frumtaks á þann veg að það einkennist af kurteisi, virðingu og sanngirni.