|
Almennt:
Frumtak er sjóður sem fjárfestir í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum sem komin eru af klakstigi og eru vænleg til vaxtar og útrásar. Sjóðurinn hefur það markmið að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði þannig að þau skili ekki aðeins góðri ávöxtun til fjárfesta heldur leggi einnig sitt af mörkum til þess að bæta það samfélag sem þau búa í.
Frumtak fjárfestir á Íslandi en er heimilt að fjárfesta erlendis að því marki sem nauðsynlegt er vegna útrásar eða markaðssóknar fyrirtækja í eigu Frumtaks á erlenda markaði. Sjóðurinn leggur áherslu á fjárfestingar þar sem líkur eru á miklum vexti og útrás, en sérhæfir sig ekki í einstökum greinum.
Ímynd:
Frumtak stuðlar að því að frumlegar hugmyndir fái framgang og eykur líkur á að þær skapi arð og verðmæti. Sjóðurinn vill þannig sýna og sanna að íslensk nýsköpun sé arðbær.
Samstarf:
Frumtak vinnur að því að hafa gott samband og eiga samvinna við alla hagsmunaaðila sem koma að nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. Sjóðurinn leggur áherslu á samstarf við erlenda hagsmunaaðila.
Fjárfestingar:
- Stjórn Frumtaks GP tekur ákvörðun um einstakar fjárfestingar og mótar einstaka þætti í fjárfestingaferlinu, þ.m.t. kaup og sölu.
- Upphæðir fjárfestinga séu á bilinu 50-500 milljónir ISK.
- Miðað sé við 3 til 5 ára eignarhald
- Ávöxtunarkrafa til einstakra fjárfestinga er 30% að lágmarki
- Fjárfestingum er fylgt eftir með stjórnarsæti og hluthafasamkomulagi
- Frumtak er virkur hluthafi og vinnur að framgangi fjárfestinga sinna
Verklag:
Frumtak leggur áherslu á fagmennsku í vinnubrögðum þannig að traust og tiltrú séu hjá hagsmunaaðilum. Sjóðurinn vill vera traustur og eftirsóttur samstarfsaðili.
|