Frá vinstri: Eggert Claessen, Kristinn Már Gunnarsson og Svana Gunnarsdóttir
Frumtak hefur lokið kaupum á hlutum í Cintamani af Kristni Má
Gunnarssyni eiganda fyrirtækisins. Cintamani er íslenskt fyrirtæki sem
hannar, framleiðir og selur útivistarfatnað á alþjóðamarkaði. Fyrirtækið
var stofnað fyrir 20 árum og hefur vaxið hratt allra síðustu ár.
DataMarket hjálpar fólki að finna og skilja töluleg gögn. Fyrirtækið hefur þróað og rekur gríðarmikið safn slíkra gagna frá tugum alþjóðlegra fyrirtækja og stofnanna, svo sem Sameinuðu Þjóðunum, Alþjóðabankanum, Eurostat og BP. Lausnir DataMarket gera notendum kleift að leita í, bera saman og skoða myndrænt gögn þessarra aðila á einum stað. Auk þess veitir fyrirtækið bæði gagnaveitum og notendum gagna ýmiskonar þjónustu byggða á þessum sömu lausnum.
Rakel Sigurðardóttir ráðin til að sinna skrifstofustjórn hjá sjóðnum
01. febrúar 2011
Rakel Sigurðardóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin til að sinna skrifstofustjórn hjá sjóðnum. Rakel lauk B.Sc. pófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík í janúar 2011. Þar áður hafði hún starfað um árabil hjá dómstól og á lögfræðistofu, auk þess að hafa sinnt margvíslegum störfum samhliða námi.
Frumtak fjárfestir í Controlant
28. janúar 2011
Frá vinstri: Svana Gunnarsdóttir, Bessi Gíslason, Eggert Claessen,
Gísli Herjólfsson, Helga Valfells og Stefán Karlsson
Frumtak hefur fest kaup á hlut í Controlant ehf. Félagið býður upp á heildarlausnir í vöktun á ástandi verðmæta með áherslu á hita- og rakastig. Lausnin er hentug fyrir alla þætti virðiskeðjunnar, hvort sem er í framleiðslu, geymslu eða flutningi. Í öllum iðnaði er nú krafist betri upplýsinga um hitaferla, en slíkar upplýsingar hafa mikil áhrif á gæði og öryggi vörunnar. Vél- og hugbúnaður sá sem félagið hefur hannað og þróað er afrakstur 5 ára þróunarstarfs. Aðaláherslan í dag er lögð á hitastigsvöktun í lyfja- og matvælaiðnaði auk rauntímamælinga á orkunotkun. Félagið vinnur með stærstu aðilum hér innanlands í viðkomandi iðnaði og hefur lausnum félagsins verið vel tekið af notendum.
Frumtak hefur fest kaup á hlut í PM Endurvinnsla ehf. Félagið einbeitir sér að móttöku plastúrgangs til endurvinnslu, en framleiðslan er síðan seld innanlands og erlendis. Félagið hefur byggt verksmiðju í Gufunesi í Reykjavík og hjá félaginu hefur byggst upp umtalsverð reynsla af framleiðslu á endurunnu plasti undanfarin 6 ár. Félagið hefur m.a. þróað aðferð til að hreinsa og endurvinna ofin plastefni og náð góðum árangri við hreinsun þessara efna, en aðgengi að heitu og köldu vatni á Íslandi veitir fyrirtækinu forskot við vinnsluna. Allar framleiðsluafurðir félagsins eru í endanlegu formi sem plastkúlur. Plastkúlurnar eru síðan notaðar af kaupendum til bræðslu í alls kyns aðra plastvinnslu.
Frumtak hefur fest kaup á hlut í Mentor ehf. Mentor var stofnað árið 1990 og hefur frá upphafi unnið með grunnskólum og er því komið með 20 ára reynslu af þróun og rekstri upplýsingakerfa. Mentor sameinaðist sænska fyrirtækinu P.O.D.B árið 2007 en erlendis er fyrirtækið rekið undir nafninu InfoMentor (sjá www.infomentor.se). Fyrstu árin voru það eingöngu grunnskólar sem nýttu kerfið en árið 2001 kom fyrsta útgáfan fyrir leikskóla og sveitarfélög. Í dag er Mentor heildstætt upplýsinga- og námskerfi fyrir alla sem starfa með börnum í skólum og tómstundastarfi. Mentor er notað í fjórum löndum og auk höfuðstöðvanna á Íslandi er fyrirtækið með skrifstofu í Svíþjóð þar sem 18 starfsmenn vinna við ráðgjöf, sölu og þjónustu við sænska viðskiptavini. Á Íslandi starfa 23 starfsmenn þar af eru fjórtán tölvunarfræðingar sem vinna við þróun kerfisins. Mentor áætlar að setja upp starfsstöð í Sviss í byrjun árs 2011 fyrir þýskumælandi markað.
Frumtak hefur fest kaup á hlut í ICEconsult hf. ICEconsult hefur þróað hugbúnað og aðferðafræði til að stýra stoðþjónustu fyrir sveitarfélög, fyrirtæki, þjónustufyrirtæki og verslanakeðjur. Þetta byggir á hugmyndafræði sem nefnist „Facility Management“ sem hefur verið að ryðja sér til rúms á undanförnum tveim áratugum í Evrópu. Almennt má segja að kostnaður fyrirtækja í stoðþjónustu sé um 10 – 20 % af rekstarkostnaði þeirra. Þetta er kostnaður fyrirtækjanna við fasteignir, búnað, ræstingu, orku, öryggisvöktun o.s.frv. Með uppsetningu á tilteknum rafrænum verkferlum og réttum þjónustusamningum er hægt að ná fram ögun og hagræðingu sem skilar um 10 – 30 % sparnaði á þessum þáttum. ICEconsult hefur nú undanfarið staðið í umfangsmikilli endurskipulagningu og hafið öfluga markaðssókn erlendis. Nú er svo komið að félagið hefur samið um dreifingu á MainManager hugbúnaði sínum í Danmörku, Englandi og Möltu, og ráðgerir slíkt hið sama í Noregi og Svíþjóð. Dreifingaraðilar hafa þegar náð að gera samninga undanfarið við stóra viðskiptavini sem gefur tilefni til mikillar bjartsýni
Frumtak hefur keypt u.þ.b. 70% hlutafjár í Median – Rafræn miðlun hf.Seljandur hlutarins eru Drómi hf. og Miðengi ehf. en Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur annast ráðgjöf og söluferli á Median – Rafrænni miðlun síðan í maí á þessu ári.Um opið söluferli var að ræða þar sem öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylltu ákveðin skilyrði var boðið að taka þátt.Markmið Frumtaks með kaupunum er að samnýtatækni og markaðsstarf fyrirtækjanna Median og HandPoint, en bæði fyrirtækin starfa á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar.
Frá vinstri : Svana Gunnarsdóttir, Viggó Ásgeirsson, Eggert Claessen,
Helga Valfells og Ásgeir Örn Ásgeirsson.
Frumtak hefur fest kaup á hlut í Meniga ehf. Félagið var stofnað í byrjun síðasta árs til að þróa veflausnir sem eru sérhannaðar til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.
Efri röð frá vinstri: Ólafur Andri Ragnarsson, Íris Kristín Andrésdóttir og Svana Gunnarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Sigurður Eggert Gunnarsson, Jónas B.Antonsson, Eggert Claessen, Helga Valfells og Guðmundur Bjargmundsson.
Frumtak hefur fest kaup á hlut í Gogogic ehf. Félagið var stofnað árið 2006 til að þróa tölvuleiki. Það sérhæfir sig í frumlegri leikjahönnun, gerð smærri tölvuleikja og framleiðslu margmiðlunarefnis fyrir vefinn. Einnig sinnir fyrirtækið hugmyndasmíði og markaðsmálum fyrir viðskiptavini sína.
Neðri röð frá vinstri: Gunnar Hilmarsson, Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, Eggert Claessen, Eiríkur Sigurðsson, Atli Vilberg Vilhelmsson. Efri röð frá vinstri: Svana Gunnarsdóttir, Hólmgeir Hólmgeirsson, Eydís Björg Sæmundardóttir, Helga Gísladóttir, Grétar Haraldsson.
Frumtak hefur lokið fjórðu fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í Andersen & Lauth ehf. Andersen & Lauth er íslenskt fyrirtæki sem hannar,framleiðir og selur hátískufatnað á alþjóðamarkaði. Félagið er með umboðsmenn og söluskrifstofur í tólf löndum og selur hönnun sína í rúmlega 450 búðir í um tuttugu löndum. Félagið var stofnað árið 2006, hóf rekstur 2007 og hefur vöxturinn verið hraður.
Þórður Þórarinsson , Eggert Claessen, Davíð Guðjónsson og, Finnbogi Jónsson
Frumtak hefur lokið þriðju fjárfestingu sinni á þessu ári og fest kaup á hlut í Handpoint ehf. Handpoint hefur frá stofnun árið 1999, sérhæft sig í hugbúnaðarlausnum á handtölvum fyrir verslunarkeðjur. Fyrirtækið hefur frá árinu 2004 þróað fullkomið afgreiðslukerfi fyrir handtölvur (e. handheld devices) sem styður nýjan greiðslukortastaðal, svokallaðan EMV staðal, sem hefur veitt fyrirtækinu sérstöðu á alþjóðavísu og skapað verkefni og viðskiptatengsl við stærstu verslunarkeðjur Evrópu sem og leiðandi velbúnaðarframleiðendur.
Hálfdan G. Gunnarsson, Eggert Claessen, Haukur Þór Hannesson , Finnbogi Jónsson og Friðrik Snorrason
Frumtak hefur lokið annarri fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í AGR - Aðgerðargreiningu ehf. AGR var stofnað árið 1998 í framhaldi af rannsóknarverkefnum við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í nánu samstarfi við Rannís og Háskólann í Reykjavík hefur fyrirtækið undanfarin ár þróað aðferðir og hugbúnað fyrir alþjóðlegan markað. Helsta afurð fyrirtækisins er AGR Inventory Optimiser sem innleitt hefur verið hjá yfir 50 fyrirtækjum í 11 löndum. Grunnþróun AGR hefur alfarið farið fram hérlendis í samstarfi við fyrirtæki í vörudreifingu, framleiðslu og verslun. Kerfið framkvæmir söluspár fyrir hverja vöru og velur sjálfvirkt þá fræðilegu spáaðferð sem hentar best fyrir hverja vöru. Kerfið reiknar síðan út hversu miklar öryggisbirgðir fyrirtæki þurfa og leitast við að lágmarka það fé sem bundið er í birgðum en á sama tíma að eiga vöruna tiltæka þegar viðskiptavinurinn þarf á vörunni að halda.
Frumtak hefur gert samstarfssamning við Klak, Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, um stuðning við frumkvöðlanám hennar sem nefnist Viðskiptasmiðjan. Þetta nám gefur frumkvöðlum möguleika á að stofna ný fyrirtæki eða koma rekstri fyrirtækja á rétta braut. Meginmarkmið námsins er að skapa þekkingu á rekstri fyrirtækja til þess að draga úr líkum á mistökum og auka möguleika sprotafyrirtækja til vaxtar og árangurs.
Stuðningur Frumtaks felst fyrst og fremst í persónulegum stuðningi við þau fyrirtæki sem taka þátt í Viðskiptasmiðjunni, bæði sem leiðbeinendur einstakra fyrirtækja um hvernig sé best að standa að náminu auk þess að kenna valin námskeið. Frumtak tekur einnig að sér fræðslu um fjárfestatengsl og það umhverfi sem búið er íslenskum sprota og nýsköpunarfyrirtækjum.
Frumtak og Klak vænta mikils af þessu samstarfi, sem reyndar er þegar hafið og hefur gefið góða raun.
Nánari upplýsingar um Viðskiptasmiðjuna er að finna á www.klak.is
Svana Gunnarsdóttir ráðin sem fjárfestingastjóri Frumtaks
01. apríl 2009
Svana Gunnarsdóttir rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðin til að gegna stöðu fjárfestingastjóra fyrir félagið.
Svana hefur mikla reynslu af stofnun og rekstri sprota og frumkvöðlafyrirtækja, einnig af samruna og yfirtöku. Svana var m.a. ein af stofnendum ARTitIS BV á Schiphol Airport, og framkvæmdastjóri þess frá 1995 til ársins 2008. Svana var ein af eigendum og fjármálastjóri Copyrite BV frá 1995-2008. Einnig stóð hún fyrir sölu á nokkrum dótturfyrirtækjum Copyrite. Hefur hún komið að stjórnarsetu og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í öðrum sprotafyrirtækjum.
Frumtak hefur lokið fyrstu fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í Trackwell hf. Trackwell hefur frá stofnun árið 1996, sérhæft sig í hugbúnaðargerð með sérstakri áherslu á lausnir tengdar fjarskiptum og staðsetningatækni. Trackwell hefur þróað þjónustu sem kallast Trackwell Forðastýring. Hugtakið forðastýring er þýðing á Mobile Resource Management (MRM) og stendur fyrir kerfi sem innifelur verkferla til þess að hafa eftirlit með og stýra notkun forða - hver er að gera hvað á hverjum tíma, hvar og hvernig.
"Það er mjög ánægjulegt að nú hefur allri óvissu verið eytt um framtíðarrekstur Frumtaks sem Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Glitnir, Kaupþing banki, Landsbanki Íslands og sex lífeyrissjóðir stofnuðu s.l. sumar” segir Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Frumtaks.
BizSpark, nýju átaksverkefni Microsoft sem miðar að því að aðstoða sprotafyrirtæki í hugbúnaðargeiranum við að koma undir sig fótunum, verður formlega hleypt af stokkunum á Íslandi í dag. Sprotafyrirtæki sem skrá sig í BizSpark fá frían aðgang að fjölbreyttu úrvali Microsoft-hugbúnaðar, þar á meðal öllum helstu þróunartólum Microsoft og tölvuskýinu Azure, fá stuðning frá samstarfsaðilum Microsoft og aðgang að tengslaneti BizSpark, þar sem finna má mögulega fjárfesta, viðskiptavini og samstarfsaðila um allan heim.
Nýsköpunarsjóður, bankar og lífeyrissjóðir stofna Frumtak
28. maí 2008
Í upphafi ársfundar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins , sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík í morgun, tilkynnti Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, að náðst hefði samkomulag um stofnun Frumtaks, samlagssjóðs stóru bankanna þriggja, stærstu lífeyrissjóða landsins og Nýsköpunarsjóðs. Frumtak mun hafa a.m.k. 4,6 milljarða króna á næstu árum til fjárfestinga í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar